IMG_9317

IMG_9317
Mannamyndir Umhverfi

Jónatan Garðarsson leiðir gönguna sem byrjar við Byggðasafnið. Hann talar um pakkhúsböllin á þarsíðustu öld, nefnir síðan böllin í A Hansens húsinu, talar um Hótel Björninn, nefnir í leiðinni Verkamannaskýlið þar sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar æfði. Gengið er að bókasafninu og talað um Skiphól og Snekkjuna, síðan að gömlu símstöðinni á Austurgötu þar sem Tónlistarskóli Hafnarfjarðar var um tíma. Gengið er að Fríkirkjunni og talar Jónatan um safnaðarsöng og tónleika eins og Heima-hátíðina. Ganga á eftir Austurgötu þar sem Heima-hátíðin hefur verið í nokkrum húsum undanfarin ár, síðan að Gúttó, þaðan að Hafnarfjarðarkirkju og Tónlistarskólanum, og að Fjörukránni/Víkingakránni. Svo er gengið til baka og farið um Strandgötuna, talað um Alþýðuhúsið, Sjálfstæðishúsið og Hafnarfjarðarbíó þar sem stundum voru tónleikar. Gangan endar við Bæjarbíó þar sem sagt verður frá Tónlistarfélaginu og þeirri starfsemi sem þar fer fram um allar helgar.

Tanja Dís Magnúsdóttir TDM

heilsuganga menningarganga Byggðarsafn Hafnarfjarðar sumar2024