IMG_8583

IMG_8583
Mannamyndir Náttúra Umhverfi

Hafnfirskar fjölskyldur og flóttafjölskyldur hittust í skólagörðunum við Öldutún síðdegis í gær í glaðasólskini. Þetta var opnunaviðburður fyrir uppskeruverkefni á vegum Hafnarfjarðarbæjar og GETA-hjálparsamtaka til að efla tengsl.

Uppskáru gleði og mannrækt við gróðursetningu grænmetis. Markmiðið er að tengja saman þessar fjölskyldur sem allar búa í Hafnarfirði og gefa þeim tækifæri til að deila reynslu og þekkingu og hjálpast að við að rækta sitt eigið grænmeti í sumar. Carmen Fuchs, sérfræðingur í málefnum flóttafólks hjá Hafnarfjarðarbæ stýrir verkefninu. Hún segir ræktun stundaða um allan heim og því tilvalda til að efla tengslin.

Gróður garðyrkja skólagarðar samfélag ræktun grænmeti uppskera Geta hjálparsamtök growing roots carmen fuchs